*Hversu grúvý?*
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
RSS tengill
13.12.2007 21:29:30 / lilja88

Kveðja frá gömlu

Vá, ég veit ekki hvað ég á til orðs að taka. Betra er seint en aldrei? Hvað á ég að segja? Hvað er blogg?

Ég var farin að efast um að ég myndi sjá þetta fallega stjórnborð lilja88 aftur. Hélt það heyrði fortíðinni til. En með hækkandi aldri, próflokum og þar af leiðandi frábæru skapi gerði bloggarinn aftur var við sig. Að meðtaldri góðri pásu...

Eftir tæpa fimm mánuði af engum upplýsingum (shit hvernig á ég að fara að því að gera nýársannál?!) til ykkar veit ég ekki hvar ég á að byrja. Ég nenni ekki að hugsa tilbaka, það er tilgangslaust, svo ég ætla bara að sleppa því og byrja að nýju...

Það er nú reyndar í lagi að líta nokkrar vikur tilbaka en undanfarnar 2 vikur hafa verið svaaaaakalegar, svo ég vitni í sjálfa mig. Skólinn hefur þann hátt á málum að hann þarf að vita hvað við kunnum svo hann leggur fyrir okkur einhver béskotans próf. Ég vil meina að þessi blessuðu próf sýna barasta ekkert hvað ég kann því margt af þessu er svo mikill utanbókarlærdómur sem maður gleymir strax næsta dag. Í gær var einmitt seinasta prófið mitt, lögfræði, sem einkenndist af þúsund kaloríum fyrir heilann minn. Skilgreiningarnar voru á nokkra tugi sem ég lærði orðréttar utanbókar, svaaaakalegt. Ein af mínum uppáhalds skilgreiningum var einmitt misneyting = þegar maður notar sér bágindi annars manns, fákunnáttu, einfeldni, léttúð eða það að hann er honum háður, í því skyni að afla sér hagsmuna eða áskilja sér þá, þannig að bersýnilegur mismunur verður á hagsmunum þessu og endurgreiðslu sem kemur til hans eða koma skal, eða að hagsmunir þessir eru veittir án endurgjalds. Sick, ég sver að ég leit ekki í bók þegar ég skrifaði þetta - hún er frammi. Þessi skilgreining kom einmitt á prófinu, snilld!

Ég er semsagt komin í jólafrí og þarf ekki að eyða einni mínútu í viðbót uppi í horninu mínu á blessaðri lesstofu Verslunarskóla Íslands. Ein prófatörn eftir og þá hefst alvaran! Ég trúi þessu ekki, allir að verða tvítugir! Nema ég auðvitað, tæpt ár í það.

Jólafrí er best. Jólalög eru uppáhalds og allt vel séð.

Ætla að segja þetta gott í bili, kem með eitthvað sláandi næst...

Kveðja Sveinki!

 




» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 17:43:27 / lilja88

Á Þjóðhátíð ég fer...

Jæja litlu vandræðagemlingar. Afsakið bloggleysi, þetta er bara allsráðandi þessa dagana.

Ef þið voruð að velta því fyrir ykkur þá er allt gott af mér að frétta, búin að vera á Íslandi núna í tvær vikur og orðin jafn hvít og ég var þegar ég fór út. Nei grín, brúnkan hrynur samt af mér. Algjörlega tilgangslausar svona utanlandsferðir, nei aftur grín.

Þessi ferð var nú alveg dásamleg. Til allra lukku kynntist ég henni Solveigu minni sem bjargaði ferðinni, vorum saman eiginlega allan tímann. Nema kannski meðan við sváfum og fórum á klósettið. Letin var yfirráðandi þarna þar sem við gerðum nú mest lítið. Fórum á ströndina allnokkrum sinnum og vorum semí (samt ekki mjög) duglegar að fá okkur Pina Colada á Hotel Kaktus. Mmm þrái Pina!

Lentum tvisvar í því að nuddararnir okkar voru handteknir á staðnum. Reyndar vorum við Solveig ekki í nuddi, látum ekki bjóða okkur slíkan lúxus. Þannig er mál með vexti að á ströndinni er allt morandi í Kínverjum að bjóða nudd. "Hola, masaje?" og þeir eru ekki með atvinnuleyfi. Í fyrra skiptið var Hanna systir mömmu í nuddi þegar grey kallinn sest á steinana við hliðina á bekknum hennar eins og hann sé að pissa og biður okkur um að rétta sér töskuna. Stuttu seinna komu lögreglumenn og tóku hann. Í seinna skiptið var Ásta, mamma Solveigar, í nuddi þegar Kínverjinn biður okkur að geyma töskuna sína og hleypur í felur bak við ruslatunnu. Þá sjáum við að lögreglan er búin að safna öllum þessum Kínverjum saman rétt hjá en okkar náði að sleppa. Lögreglan náði samt töskunni!

Einu sinni fórum við saman, fjölskyldan mín og fjölskylda Solveigar, á ströndina á Calpe. Það hefðum við nú alveg eins getað látið ógert. Þar var sandströnd og við vorum alveg að fríka út, sandur út um allt og allt ógeð. Vil ekki tala meira um það!

 Þrisvar sinnum duttum við Solveig líka í djammið á Bene. Fyrsta skiptið var nú langfyndnast. Við ætluðum bara að detta í karokae á Albir en partýið á hótelinu sem við störtuðum var það lengi og skemmtilegt að karókíið var búið þegar við komum. Ákváðum við því, ég, Solveig, Ásta mamma Solveigar og ein önnur kona á hótelinu að skella okkur bara á Benidorm. Vorum á Jokers allt kvöldið, hittum íslenskan strákahóp og skemmtum okkur svo mikið með þeim úti að við misstum af klámshowinu! Damn...

Í annað skiptið var nú ekki mikið um sukk. Ég & Solveig skelltum okkur með Halldóri, Elísu, Svövu og Signýju sem voru á Albir með frjálsum á Bene. Fórum á Jokers og seinna á Bahamas þar sem við klárlega dönsuðum sköggalega af okkur rassgatið! Halldór var klárlega töskuhaldari þetta kvöld, takk marr.

Þriðja skiptið var nú alveg gullið líka. Hann Steinar okkar kom þegar við áttum viku eftir og vorum við ekkert að hafa fyrir því að kynnast greyinu. Fyrr en seinasta kvöldið þá langaði okkur Solveigu svo á Bene og ákváðum að bjóða Steinari með. Það var alltof gaman! Vorum með eiginlega engan aukapening en fólkið á stöðunum stendur bara fyrir utan, tekur mann inn, gefur manni áfengi og eftir það vorum við fljót að fara á næsta stað! Enduðum í góðum gír á karókíbar þar sem okkar fallegu söngraddir fengu að spreyta sig á Mandy með Westlife, Wannabe með Spice Girls, Karma Chameleon, La Bamba og síðast en ekki síst lagði Steinar í Hero með Enrique ásamt karlinum sem stjórnaði karókíinu! Gullið.

Þetta er nú ágæt ferðasaga finnst mér, þessir hlutir stóðu að minnska kosti upp úr. Auðvitað fór ég líka í Terra Mitica og svona en finnst óþarfi að segja frá ööööllu sem ég gerði haha.

Að komast heim í kuldann var fínt. Ég var komin með seeemí mikla heimþrá. Eftir að ég kom heim er ég nú ekkert búin að gera neitt rosalegt. Fór Esjuna með Elínu minni og fór í bekkjarpartý seinasta laugardag! Það tvennt stendur svona upp úr...

Síðan eru nú aðeins TVEIR dagar í Þjóðhátíð. Ég bókstaflega get ekki beðið. Ég & Harpa vinnufélagi erum gjörsamlega að missa vitið, við hlökkum svo mikið til! Enda er ég líka góð í að espa fólk upp, hún var nú í byrjun sátt að fara bara kannski á laugardegi en núna er Harpa litla að fara á fimmtudaginn. Haha góð ég!

Það er nú samt ekkert grín hvað eru margir að fara. Úff, þetta verður yndislegt, enda er lífið yndislegt!

Sjáumst á Þjóðó krakkar & endilega bjallið í Liljuna ef þið eruð stödd á eyjunni fögru!

Endi þessa færslu á besta þjóðhátíðarlegi sögunnar, made by me...

Eyjar þar til ég dey

G                                                 C
Ég ákvað fyrir langa löngu að fara
D                                    G
ásamt mínum vinkonuskara.
G                       C
Til lítillar eyju Vestmannaflotans
G                  D              G
á hátíð sem kölluð er Þjóðhátíð Íslands.

Við fórum að safna og eyddum nær engu
því stelpurnar þrælgóða hugmynd fengu.
Við fengum herbergi á heimili einu
því við vorum ekki einar af þeim seinu.

Við tókum smá forskot á þjóðhátíð eyja
svo gætum við húkkað þrjá eyjapeyja.
Stuðmenn stóðu þar alveg fyrir sínu
en við kvöddum þó ballið, einmana pínu.

Maður lætur þó ekki allt á sig fá
og reynir markmiðinu enn að ná.
Þó maður brjóti hillur og annað,
að gefast upp er alveg bannað!

Föstudeginum eyddum í leti
þó engu helvítis djöfulsins freti.
Við fórum í sund og snyrtuðum okkur
það þekkti okkur ekki maður nokkur.

Um kvöldið við fórum og skrölluðum mikið
og fengu nokkrir skömm fyrir vikið.
Hvað kallar maður það að koma ekki heim
í heilan sólarhring, playin´ the game?

Orkan var aldrei frá okkur tekin
þó augun væru smá niðurlekin.
Við djömmuðum dátt þann næsta dag
hann var okkur öllum í hag.

Á sunnudeginum Johnsen mætti
og allan skarann þvílíkt kætti.
Með brekkusöng sínum og heillandi augum
slakaði hann á allra manns taugum.

Við dönsuðum lengi fram eftir degi
þó ég sjálf frá því segi.
Við fórum varla að sofa þá nótt
og sorgin öskraði í hjörtum okkar ótt.

Ég trúi því varla að helgin sé liðin
því endalaus fannst mér eftir henni biðin.
Ég kveð með tárum í auga, en hey:
EYJAR ÞAR TIL ÉG DEY!
 

Sjáumst í Dalnum!


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 23:00:53 / lilja88

Ísland!

:haha:

Jaeja núna er thetta komid gott. Ég er búin ad vera hérna í 19 daga og thetta er komid nóg. Núna finnst mér ég bara tilbúin ad fara heim og hef ekkert not fyrir morgundaginn.

Kem semsagt heim á fimmtudaginn og get ekki bedid.

Annars er frábaert hérna, margt skemmtilegt búid ad gerast. Kynntist henni Sólveigu minni sem er búin ad bjarga mér hérna m.a. med spaenskunni sinni. Sídan lentum vid tvisvar í tví ad nuddarar okkar voru handteknir á stadnum og vid hofum einnig dottid í djammid á Bene sem var heldur betur brjálad. Úfff...

Kem med nánari ferdasogu tegar ég kem á Frón.

Hlakka til ad sjá & heyra í ykkur ollum!

Ástarkvedjur,

lilja.


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 21:20:01 / lilja88

Á Spáni get ég skemmt mér fyrir lítid fé...

 

... á Spáni kostar sjússinn ekki neitt!

Buenas noches bonitos!

Núna er klukkan 23.10 ad stadartíma og ég hef ekkert betra ad gera en ad blogga smávegis.

Af mér er allt frábaert ad frétta. Komin til Spánar í sólina, reyndar úr sólinni á Íslandi. Hvernig er tad, er enntá svona geggjad vedur hjá ykkur á Fróni?

Vid fórum semsagt seinasta fimmtudag og vorum komin upp á hótel um midnaetti. Ég var svo rosalega heppin ad fá ad sitja ein vid hlidina á hjónum í flugvélinni og grey karlinum var eitthvad vodalega heitt alla ferdina og var bara berfaettur. Tad var frábaert. Annars var tad ágaett, sat vid gluggann og svo gerdi ég líka svo góda fjárfestingu í fríhofninni; keypti mér bókina Viltu vinna milljard? og ég las hana bara alla ferdina. Tetta er án efa ein besta bók sem ég hef lesid, ef bara ekki sú besta! Tví midur kláradi ég hana á tremur dogum, aej.

Dagarnir hérna eru nú mjog svipadir alltaf. Er ekkert byrjud ad fara í Terra Mitica, Aqualandia eda versla. Ligg bara flatmaga allan daginn og worka tanid. Fjarfesti í snilldarskóm til ad fara í sjóinn í gaer sem ég notadi svo í dag. Fór bara med Honnu fraenku á strondina og var ein í sjónum, smá einhverft ad vera eitthvad ein tar tar sem ekkert mikid er ad gera nema kannski sveifla adeins loppunum og fljota - meira er tad ekki. Legg ekki enn í hjólabát tar sem eg vard bara sjóveik seinast tegar ég prófadi tannig apparat.

Í gaer gerdi ég líka adra góda fjárfestingu. Keypti mér Puma-hlaupaskó og Fila-stuttbuxur sem ég notadi svo í morgun. Jájá, ég vaknadi 8.30 og fór út ad hlaupa. Sjúklega dugleg, med ipodinn minn á hendinni í toskunni sem ég fjárfesti í í flugvélinni.

Var alveg búin á limminu tegar ég kom tilbaka svo ég fór bara í sturtu og sofnadi svo aftur í klst.

Kvoldin hérna eru líka mjog lík, erum búin ad fara út ad borda oll kvold og sitjumst svo venjulega bara á einhvern pobb eftir tad. Smakkadi einmitt piña colada í fyrsta skipti í dag. Mmm best í heimi! Svo erum vid líka dugleg ad búa okkur til Mojito inni í herbergi og er ég tar yfirmojitogerari, ekki treysti ég pabba í tad! Oj hann gerdi ádan og tad var bara sykurledja, meira ad segja brúnt á litinn eftir allan hrásykurinn!

Aetla ad segja tetta gott í bili, bid ad heilsa ollum og vid sjáumst 19. júlí! Úff, hlakka til ad koma heim.

-lilja señorita

ps. ég get ekki kommentad á myspace! en elín ég er búin med einn pakka af góda namminu! best, sakna tin líka!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 19:19:14 / lilja88

Hér kemur Lilja...

Jæja, langaði bara að kasta á ykkur kveðju þar sem ferð minni er heitið til Spánar á morgun þar sem ég mun dvelja í leti í 3 vikur.

Úff...

Er samt ekki byrjuð að pakka, dúlli bleiki (svarti) jr er með vesen.

Þetta reddast.

Hafið það gott litlu börn & við sjáumst 19. júlí!

Ykkar,

Lilja.


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 18:11:41 / lilja88

Fjósaklettur logar - bálið brennur...

Hvurn fjandinn? Hvaða sjötíu og eitthvað manneskjur eru þetta sem eru að skoða síðuna mína? Síðuna hjá einum af lélegasta bloggara sem sögur fara af?

Hvað sem því líður þá er allt það besta að frétta af mér! Sumarið bara búið... nei grín. Er búin að fara í eina útilegu í sumar, skrapp aaaaðeins vestur! Haha, ég & Ási ákváðum að bruna laugardaginn 9. júní og kíkja á Halla & félaga. Snilldarútilega þó ég hafi komið heim með hættulega marga marbletti á fætinum, hvað skeði? Myndirnar eru komnar á myndasíðuna mína en á eftir að færa þær yfir á þessa.

Síðustu helgi skrapp ég á föstudagskvöldinu aðeins upp í bústað hjá afa hennar Ásu þar sem hún, Sandra & Andrea voru í góðum gír að sötra Mojito! Brunaði síðan í vinnuna kl 8 morguninn eftir, sweet.

Mikið annað er ég ekki búin að gera, reyndar á þriðjudaginn hljóp ég 7 km. Er aðeins of stolt. Sorry man.

Í dag er ég svo bara búin að vera í fríi, langþráð helgi komin og plönin alveg út um allar trissur. Er reyndar svona næstum búin að negla þetta, djamm með Kareni sys og vinkonum í kvöld og svo útilega á morgun!

Síðan eru bara 6 dagar í Spán! Get ekki beðið, liggja í sólbaði í 3 vikur. Mhmmm...

La Colina - my beautiful hotel!
Verðum í herberginu lengst til hægri á neðstu hæð.

Segi þetta gott, hafið það gott um helgina dúllur & gangið hægt um gleðinnar dyr:*


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 19:53:12 / lilja88

Blómin springa út...

Sautjándi júní lagið0

G                                      C
Blómin spring út og þau svelgja í sig sól.
D                                   G
Sumarið í algleymi og hálft ár enn í jól.
                                               C
Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag,
      A                           D
því lýðveldið Ísland á afmæli í dag.


G                               D                                            G
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.
G                               D                                             G
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.


G                                         C
Jóni heitnum Sigurðssyni færir forsetinn,
D                                      G
firnamikinn árvissan og stóran blómsveiginn.
                                         C
Fjallkonan í múnderingu prílar upp á pall,
        A                                     D
með prjáli les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall.


G                               D          
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........


G                                                   C
Skrúðgöngurnar þramma undir lúðrasveitarleik,
D                                        G
lítil börn með blöðrur, hin eldri snafs og reyk.
                                         C
Síðan líður dagurinn við hátíðannahöld,
A                                        D
heitar étnar pylsurnar við fjölmörg sölutjöld.


G                               D          
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........


G                                         C
Um kvöldið eru allsstaðar útidansleikir,
      D                                  G
að sunnan koma rándýrir skemmtikraftarnir.
                                              C
En rigningin bindur enda á þetta gleðigeim,
      A                                     D
því gáttir opnast himins og allir fara heim


G                               D          
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........

Varð að blogga því það er 17. júní! Í dag er ég búin að vinna & sofa, frábært! Í kvöld ætla ég nú samt að sýna lit og kíkja niður í bæ. 

Gleðilegan þjóðhátíðardag sæta fólk!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 21:48:05 / lilja88

Hetja ársins!

  heart

Vá, það hlaut að gerast. Þið eruð örugglega flestöll búin að heyra í fréttunum eða lesa blöðin í dag og í gær. Slys í Lágafellslaug. Ég á vakt. Jói HETJA!

Ég varð að vísu ekki vitni að þessu slysi og ég veit ekki hvað ég hefði gert. Hrikalegt að lenda í þessu, úff! Kemst ekki yfir hversu duglegur Jói var!

 

Annars er mest lítið að frétta af mér. Hef tekið eftir því að ég segi "annars" mjög oft í bloggunum mínum. Mhmm...

Fór í bæinn í dag með Vallý & Karen. Sweet. Keypti mér flottustu skó sem ég hef séð! Má giftast þeim? Keypti mér líka peysu sem ég er búin að leita að út um allt. Elska þegar ég kaupi eitthvað sem ég er ógeðslega ánægð með, best!

Minna en mánuður í Spán! Aaaaa...

Það sem er samt eiginlega efst á huga mínum núna er Þjóðhátíð, get ekki beðið eftir henni! Karen sys og vinkonur hennar voru einmitt að panta Herjólf í dag. Þetta verður geðveikt!

www.dalurinn.is
kominn í gang!
sweet

Vinnuhelgi framundan. Monningar.

Heyrumst bæ

-lilja*


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 14:06:02 / lilja88

Hvað á að vera hér?

  

Frábært - alveg hreint frábært! Ég vissi þetta. Undanfarna daga hefur veðrið verið of geðveikt en nei núna í dag, um leið og allir Verzlingar eru búnir í prófum þá fer það. Kviss - bamm - bæng.

Annars er ég bara góð hérna, nývöknuð og fersk. Er í mínu tveggja daga fríi sem ég fæ í þessari viku, í næstu viku fæ ég fimm daga frí = næhæs! Gott veður, guð plís!

Eurovision var víst á laugardaginn. Ég bara á ekki til orð hvernig þessi keppni hefur þróast. Ég er alveg viss um að þessi austur-evrópsku lönd hlusti ekki einu sinni á öll lögin, kjósi bara næsta landið við sitt eigið. Flottir aular. Má samt ekki gleyma að tónlistarsmekkurinn þeirra er svoleiðis allt öðruvísi en td hjá okkur Norðurlandaþjóðum. Við reynum að senda semí hress lög með laglínu en nei þau búa bara til eitthvað garg og indíánaöskur og bæta smá trommum við. Nenni samt ekki að svekkja mig á þessu, vonandi verður komið eitthvað nýtt skipulag á þetta næst og Ísland vinnur Eurovision!

Hmm þetta var nú smá útúrdúr. Burtséð frá þessu svekkelsi þá skemmti ég mér einum of vel á laugardaginn. Við Fríða mættum heim til Kristjáns í góðu róli kl 17.30 haha. Næstu gestir komu reyndar ekki fyrr en rúmlega 6. Planið var að kveikja á grillinu 17.30 en vegna antigrillhæfileika strákanna grilluðum við ekki fyrr en ca klst var búin af keppninni. Þetta var bara of gott partý og það sem einkenndi það var bara mesta mosóstemning veraldar, var ekki einn þarna sem var ekki úr mosó. Eftir Kristjáns partý cröshuðum við partý hjá honum Palla þar sem allir voru í góðu tjilli að horfa á kosningarnar.

Í gær var enn ein skemmtunin í lífi mínu. Lokaball Verzló! Að þessu sinni var fyrirpartý hjá Ólöfu og ballið sjálft var haldið á NASA og Buff voru að spila. Þeir voru geðveikir og þetta var bara of gott ball!

andreahuldaslaugg.jpg

andrea - hulda - áslaug - ég hressar í gær

Ég vil nota tækifærið og óska Fríðu & Vallý til hamingju með próflok. Vallý  stúdent! Úff trúi ekki hvað ellin er að hrynja yfir okkur.

Ætla að segja þetta gott og fara að æfa mig á fiðlu.

-lilja

ps hvað er planið í kvöld?

Ahh Albir!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 19:07:07 / lilja88

Can you feel the lovepower comin' your way?

 

SWEET

Jæja, þá er komið að því litlu börn. Ég er mætt aftur, hressari en nokkru sinni áður tilbúin að trylla lýðinn. Það má með sanni segja að ég hafi safnað upp nægum kröftum, visku og kærleika til að blogga aftur sem aldrei fyrr. Nei reyndar ekki alveg, er eiginlega dottin úr æfingu - bloggæfingu. Við skulum bara rétt vona að hún komi með kalda vatninu, eins og svo margt annað!

Okei ég þoli ekki blogg sem eru á þessari leið "Hæ. Í dag vaknaði ég, borðaði kellogs, fór út í búð og keypti mjólk, sveppi og ananas. Síðan fór ég heim og horfði á Leiðarljós og Styrktaræfingar með Ágústu Johnsen. Síðan borðaði ég pizzu með skinku og sveppum og fór síðan út að hitta stelpurnar og við fórum á myndaflipp. Síðan fór ég að sofa." Vá heilt blogg í nokkrum línum! Nei allavega, ég ætla að gefa mér undanþágu. Reyndar ætla ég ekki að vera alveg svona  nákvæm en ég ætla að stikla á stóru yfir það hvað ég hef verið að bardúsa undanfarinn mánuðinn. Hjálp, á aldrei eftir að muna það!

*er komin með topp
*afmæli Yrju, gebbaðasta djamm ever!
*vann mikið í páskafríinu í sundlauginni
*afmæli Rannveigar
*partý í hesthúsinu hjá Kára - algjör snilld. Fríða elskar hestana...
*gerði spænskuvídeóverkefni, hay un chico en está ciudad. algjör snilld!
*jarðfræðiferð! eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert...

Hér kemur smá ferðasaga:

Farið var á sumardaginn fyrsta í jarðfræðiferð. Þrír bekkir áttu að fara en þegar upp var staðið voru ferðalangarnir samtals níu talsins! Skipt var út stórri rútu og fengum við litla kósý í staðinn. Við vorum átta úr mínum bekk og síðan María úr S-bekknum. Eftir mikið vesen lögðum við loks af stað um hálftíu-leytið. Við byrjuðum á að fara á Þingvelli, því næst skoðuðum við Kerið og þriðja stoppið var hjá Gullfossi. Við skoðuðum fullt af fleirum náttúruperlum sem ég veit einfaldlega og því miður ekki hvað heita. Við komum loks á Hótel Skaftafell um 7-leytið og borðuðum gómsætt lasagne. Eins og alvöru jarðfræðingum sæmir fórum við í göngutúr um kvöldið upp á Öræfajökul. Komum síðan tilbaka og vorum bara í góðri stemningu með gítar og viðeigandi að skemmta okkur fram undir morgun. Daginn eftir skoðuðum við Svartafoss sem er gebbaður.

kerid

Dúllur hjá Kerinu - Snævar, Jón Ásgeir, Rannveig, ég, Bryndís Þóra, Ólöf & Bryndís
-vantar Maríu & Tryggva-

IMG_1433.jpg

Ég & Bryndís hressar

*PRÓF 30. apríl - 9. maí! Lögheimilið flutt að Ofanleiti 1 og mikil einangrun átti sér stað.

Hér sit ég nú, endurnærð og veit mikið meira um jarðfræði og efnafræði en ég gerði fyrir tveimur vikum síðan. Prófin gengu bara vel og ég get ekki beðið eftir einkunnunum.

Ég er alveg að fýla sumarfríið. Horfði á Eurovision smjúróvísjón í gær með Söndru, Áslaugu, Bryndísi, Andreu og Huldu. Það var svekkt. Mafíu smafíulönd Evrópu eru að kaupa þessa keppni og það er bara staðreynd að lélegustu lögin komust áfram. Ísland, Belgía, Noregur og Danmörk fannst mér algjörlega eiga skilið að komast áfram. Hrmpf.

Dagurinn í dag var svo algjörlega draumur í dós. Ég og Fríða fórum í lengstu sundferð sem sögur fara af. Vorum í tvo tíma í sundi og að sjálfsögðu keyptum við okkur ís eftir á. Mmm.. enda besta veður í heimi!

Síðan er planið að fara í Kubb í kvöld (oh Vallý hvað kölluðum við þennan leik aftur á Leikjanámskeiðinu??) og á morgun er víst Eurovision partý. Eins og svo oft áður er ég búin að velja mitt uppáháldslag í keppninni og að þessu sinni er það Svíþjóð sem á það.

http://www.eurovision.tv/addons/mediaplayer/video/swe.html

Síðan er planið fyrir sumarið allt að mjakast. Ég er að fara til Spánar í 3 vikur 28. júní! Get ekki beðið. Að sjálfsögðu verður Þjóðhátíð á sínum stað, við Úna & Hildur leggjum í hann á fimmtudeginum og heim aftur á mánudeginum! Get ekki beeeeeðið eftir því heldur.

Villtist einmitt áðan inn á heimasíðuna hjá góðvinum mínum í Dansi á Rósum. Þannig er mál með vexti að ég frétti það fyrir seinustu þjóðhátíð að þeir yrðu á staðnum og vildi tryggja það að þeir tækju lögin mín...

Nafn: lilja
Netfang: lilja1988@hotmail.com

Sælir! Ætlaði bara að minna ykkur á að taka "Komdu í partý" með Mannakornum
og CCR-slagara á Þjóðhátíð. Það myndi gleðja mitt litla hjarta!

Nafn: Tóti
Netfang:

Lilja ég held að við ráðum við það sem þú ert að byðja um við erum með
eitthvað af CCR-slögurum þannig að sjáumst á litla pallinum Kv Tóti

Aaaa var svo ánægð þegar ég sé þetta áðan! Tók nefnilega aldrei eftir þessu.

Vá hvað mér líður vel að hafa bloggað, hafið  það gott elskur!

 -lilja með toppinn

toppur

ég og kolli

 Hér er myndin Kári:

gedsjukur!
 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 20:49:27 / lilja88

ég er lítil

 

Hæ. Þarna ég er dálítið hrædd við ykkur. Ég er ekki búin að blogga geðveikt lengi og búin að lofa fullt af myndum, fattiði?

Þannig að ég þori eiginlega ekki að segja neitt nema ég mun bæta mig, henda myndunum inn um leið og þetta páskafrí verður að fríi og mig langaði líka að minna á það að á morgun er...

Lots of luv!

lilja<3


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 22:01:07 / lilja88

Djammsi medium!

 

Já góðan daginn & glaðan haginn! (Ef þetta orðasamband er ekki til þá er ég ekki í góðum málum þar sem ég er með það á heilanum og segi það amk 27 sinnum daglega)

Jæja ég er loksins búin að pakka mér niður í ferðatösku, fara í gegnum tollinn, heimsækja Úsbekistan, kyssa Josh Hartnett og er komin aftur heim til Íslands með loftbelg.

Nei grín, ástæðan fyrir bloggleysinu er svosum engin.

Áður en ég byrja bloggið af alvöru verð ég að koma með mest sláandi og munngapandi frétt ársins!

 Elsku litla Fríða mín er loksins komin með bílpróf!
Bara ári og níu mánuðum á eftir samtímanum! Flott dúlla.
Hún er einnig komin með stöð 2 og skjáeinn!
Eins og hún sjálf sagði er 21. öldin að hrynja yfir hana.

Til hamingju sæta! (svona er Fríða þegar þið mætið henni á götunni)

Ekki er nú margt annað í fréttum. Síðan seinast er ég búin að fara í afmæli til Elínar, Mosó-partý hjá Ása, kökuboð til Vallýjar og svo mætti lengi telja.

Í gær var líka fjör! Verzlóball þar sem þemað var mafían og casino. Við stelpurnar vorum endalaust sniðugar og fórum í Virku þar sem við keyptum hárbönd, veiðibúð þar sem við keyptum fjaðrir og Ice in a Bucket þar sem við keyptum hanska. Vorum algjörlega í anda Bugsy Malone.

Fyrirpartýið var heima hjá Bryndísi og við, Ása & Sandra mættum að sjálfsögðu fyrstar af öllum en við vorum ekki lengi að panta okkur pizzu sem við gæddum okkur á ásamt nokkrum sem komu aðeins seinna. Síðan hófst bara alvaran, allt fólkið mætti og græjunum var blastað. Ég & Jón Ásgeir stungum af inn í eitthvað herbergi þar sem trúbador-stemningin var ríkjandi, hann að sýna mér fullt af lögum sem hann hefur sjálfur samið og ég fékk einnig að sýna mína hæfileika. Bryndís bættist í hópinn og við rifjuðum upp Væls-lagið okkar fræga.

Því næst var haldið á ballið þar sem Páll Óskar þeytti skífum. Tónlistin um kvöldið var snilld! Hef aldrei vitað um jafn góða tónlist. Ekki nóg með það heldur þá söng hann sjálfur fullt af lögum kappinn. Sátt með hann! & sátt með ballið.

Hey annað sem ég lofaði að minnast á! Ég gekk í eitt stykki félag í gær, Djammsafélagið. Meðlimir eru Eva, Hildur M & ég. Eva = djammsi litli , Hildur = djammsi stóri & ég = djammsi medium. Við djammsarnir munum gera allt vitlaust á Þjóðhátíð! sjællen.

Djammsinn ég læt skemmtunina í gær ekki duga fyrir vikuna. Á laugardaginn rennur upp dagur sem ég hef beðið eftir síðan 1. apríl í fyrra! Árshátíð Kaupáss. Fyrirfyrirpartý, fyrirpartý, matur, skemmtiatriði, ball með DANS Á RÓSUM og endalaus skemmtun langt fram á nótt. Ekki skemmir það að Sigmundur Aron vinur minn verður á staðnum, það tryggir ekkert nema hámarksskemmtun!

Sigmundur = Silli, Ási & Aron
(SIGvaldi, ásMUNDUR, ARON)

Segi þetta gott & kveð með einni ferskri úr skólanum!

Alltaf gaman hjá mér & Söndru maður! ( Sandra alltaf að tyggja eitthvað )

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 19:10:49 / lilja88

Spacequeen!

 

Tilgangurinn með þessu bloggi er tvískiptur.

Annars vegar vil ég ( þó seint sé ) greina frá nafninu sem barnið mitt hlaut og hins vegar kenna ykkur nýtt orð.

Í byrjun febrúar eignaðist ég barn, nánar tiltekið bíl og enn nánar tiltekið Hondu Jazz. Ég var í mestu vandræðum með að skíra ungann þangað til Hildur Margrét kom til sögunnar. Ég var að ræða við stúlkuna á msn þegar hún sagði mér að henni fyndist að snáðinn ætti að heita Kasper. Ég spurði um ástæðuna og þá kom þetta gullna svar: "æjj ég veit ekki ég fékk bara allt í einu þessa tilfinningu". Mér fannst þetta svo gott svar svo ég ákvað að slá til. Daginn eftir fannst mér Kasper ekki nógu langt og grípandi nafn á gripinn svo ég bætti við hinu gullna nafni Gullvagninn, sbr lag Björgvin Halldórs.

Það er mér því sönn ánægja að kynna...

Gullvagninn Kasper!
(reynið að finna flottara nafn!)

Eins og ég sagði við ykkur langar mig líka að kenna ykkur nýtt orð, sem er að mínu mati besta orð í heimi (toppar blédzik!). Þannig er mál með vexti að um daginn var ég í vinnunni og hann Hilmar vinnufélagi misskildi eitthvað það sem ég sagði og horfði undrandi og spurjandi augum á mig, "milja?" Uppfrá þessu varð milja orð. Það er mjög hentugt orð því það sameinar tvær lýsingar í einu orði.

Milja = flottur auli & grill (steikhaus)

Segi þetta gott

milja*

ps bjórkvöld í kvöld! jee


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 00:21:14 / lilja88

Við drekkum Jameson!

Okei, plís. Nennir einhver að segja mér frá einhverri góðri myndasíðu þar sem ekkert vesen er í gangi, maður getur bara valið allar myndirnar í einu og fundið sjálft urlið fyrir albúmið.

Ég sit hérna eins og sveittur bavíani að reyna að setja inn myndir frá því í gærkvöldi. Ég er með einhvern svaka fídus, photobucket flock, þar sem ég get jú valið allar myndirnar í einu en ég veit samt ekki hver slóðin er að myndunum fattiði?

Ég ætla nú samt að hafa smá myndayfirlit yfir frábært gærkvöld...

Ég & Unnur hittumst heima hjá mér og drukkum...

IMG_0783.jpgIMG_0782.jpgIMG_0794.jpg

             eplacider                                 bjór                          og kjömsuðum á hnetum

Því næst tók við...

IMG_0849.jpgIMG_0798.jpg

                                 póstími (villtur)                          og útilegustemning (sveitt)

Uppúr 9-leytinu héldum við stöllur til hans Kára þar sem var að sjálfsögðu...

IMG_0810.jpgIMG_0811.jpg

                                 buffalo-leikur               og hræðilegur buffalo-stjórnandi

Þegar líða tók á kvöldið kom þessi stemning í liðið...

IMG_0830.jpgIMG_0827.jpg

                     útilegustemningin                   &                diskófílingurinn

Heiðusgestir kvöldsins voru án nokkurs efa...

IMG_0815.jpgIMG_0828.jpgIMG_0832.jpg

               Nonni                              Lilli                               og Harpa keflvíkingur

Svo ég víki frá myndum, þó þær segi nú oftast meira en þúsund orð, þá var þetta partý bara eðal. Eins og góðu partýi sæmir þá var allt í boði þarna: útilega, trúnó, vangadans, hræðilegur singstar-söngur, ávextir, snakk, hámarksölvun & pizza.

Ég vil endilega þakka honum Kára fyrir að halda þetta partý, lovit!

Sjáumst. l8er...

IMG_0846.jpg

lilja puppy, barnapía, gullkorna-meistari (snickers) & match-maker

-myndir væntanlegar!-


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 19:56:02 / lilja88

Nýr fídus?

 

Nei þetta kallar maður sko lélegt. Ég ætti að fá orðu fyrir að vera lélegur bloggari.

Undanfarið hef ég fengið einhvern ónotahroll þegar ég hugsa um það hversu langt er síðan ég hef bloggað. Finnst það eitthvað svo rangt, stressandi og hræðist það að einhver skammi mig.

"Betra er seint en aldrei" og "Á morgun segir sá lati" eru víst orðatiltæki sem eiga mjög vel við mig.

Annars er mest lítið nýtt í fréttum af mér. Þessi helgi er búin að vera alveg ofurkósý. Á föstudaginn skelltu ég, Vallý & Fríða okkur í bíó á Little miss sunshine. Ætluðum á hana kl 8 en neinei þá var uppselt! Það kom okkur mjög í opna skjöldu þar sem þessi mynd er búin að vera óheyrilega lengi í bíó en jæja, við bara rúntuðum og tjilluðum á Esso Hringbraut. Heví svalar! Fórum síðan aftur í bíóið kl 10 og náðum miðum, jeij. Sé ekki eftir þessum 900 kalli, þessi mynd var snilld. Mæli með henni.

Laugardeginum eyddi ég í ræktinni. Borðaði líka smá. Síðan um kvöldið hittumst ég, Vallý, Jói, Palli, Fríða & Hildur heima hjá Jóa og fórum í pictionary/actionary & guitar hero. Elska guitar hero!

Í dag vaknaði ég, fór í ræktina, lærði, borðaði og nú sit ég hér.

Nóg af yfirliti yfir helgina mína. Verð reyndar að koma einu inn sem mér finnst mjög krípí. Ég vaknaði á nákvæmlega sömu mínútu bæði í dag og í gær; 12:59. Báða morgnana vaknaði ég, leit á klukkuna og þá var hún þetta. Smá flashback eða?

Ég fékk smá kjánahroll áðan þegar ég horfði á fréttirnar. Ég tók eftir einu sem ég hef aldrei almennilega tekið eftir áður. Alltaf þegar verið er að "frétta" um einhver bankamál bregst það ekki að alltaf sjást mjög flinkar hendur telja peninga. Mér finnst það dálítið kjánalegt, með fullri virðingu fyrir bankafólki sem er eflaust búið að fara á námskeið að telja peninga svona geðveikt fancy.

Ætla að segja þetta gott í bili, bara pínubili - skal ekki láta svona langt líða á milli blogga næst!

-lilja

(ég veit ég skulda ykkur fullt af myndum - það er bara svo leiðinlegt að setja þær á netið!)


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 26
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 29 desember